47 kílómetrar, 141 kílómetri og 2000 krónur

Mér finnst eins og það sé eitthvað bogið við það að leggja nýjan veg alla þessa leið til að spara ökumönnum tæplega 50 kílómetra. Það er talað um að það dragi úr mengun vegna útblásturs bifreiða en mig langar hins vegar til þess að vita hversu mikil mengun er af því að leggja svona veg. Er ekki mengun af lagningunni? Og svo er auðvitað spurningin um sjónmengun auk alls annars sem verður byggt þarna í tengslum við veginn, sjoppur og bensínstöðvar. Ég ætla samt ekki að fara að vera einhver dómari í því hvort það sé rétt eða rangt að leggja hraðbraut um hálendið út frá náttúruverndarsjónarmiðum. Það er auðvitað hið besta mál að auðvelda aðgengi að náttúruperlunum okkar á hálendinu og dálítið súrt að fólk þurfi að eiga jeppa til að komast þangað, en þetta er nú kannski örlítið ýkt, eða hvað? Hvað með að leggja bara einhvern penan veg sem hægt væri að komast eftir á fólksbíl á góðum degi?

Ég verð síðan að viðurkenna að mér finnst vera eitthvað skrýtið að velta sér svo upp úr því hvað sé þá langt milli Akureyrar og Selfoss. Ég fæ það á tilfinninguna að það sé til þess gert að þetta líti í fljótu bragði út fyrir að vera gáfulegra en það er. Ég held nefninlega að það sé ekkert sérlega hátt hlutfall ökumanna sem keyra milli Akureyrar og Reykjavíkur sem halda áfram til Selfoss.

Árið 2005 voru um 3000 bílar á dag að meðaltali sem óku yfir Hellisheiði hvora leið. Spurningin er síðan hversu margir af þessum 6000 ökumönnum eru að fara alla leið til Akureyrar frá Reykjavík og öfugt. Vegna þess að ég hef miklar efasemdir um að sá sem ætlar ekki alla leið til Akureyrar heldur bara t.d. til Varmahlíðar hafi takmarkaðan áhuga á því að borga 2000 krónur fyrir þá 9 kílómetra sem viðkomandi getur sparað sér.

Næsta spurning mín er síðan sú hversu margir eru tilbúnir til að borga 2000kr fyrir að spara sér 47 kílómetra. Ég er ekki viss um að það séu endilega svo rosalega margir. Margir hafa a.m.k. tjáð sig um það að sér finnist 1000 kallinn sem kostar í Hvalfjarðargöngin alveg í hærri kantinum fyrir það sem þau eru tilbúin til að greiða fyrir þann tímasparnað, og þar er það líka mjög leiðinlegur hluti leiðarinnar sem dettur út. Áætlunin er að það verði 500 bílar á dag, fyrsta árið, sem nýti sér veginn. Það er nú kannski alveg raunhæft, það er ekki gott að segja. Aldrei hægt að vita hvernig fólk bregst við svona hlutum. Nískupúkinn ég myndi þó líklega spara mér 2000 kallinn.

Já, þær eru margar spurningarnar sem manni dettur í hug svona á sunnudagskvöldum :)


mbl.is Vilja hefja undirbúning nýs vegar yfir Kjöl í einkaframkvæmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Í raun er maður ekki að borga 2000 kall fyrir þetta þar sem Hvalfjarðargöngin detta út á móti með sinn 1000 kall. Þá er maður að borga 1000 kall fyrir 47 kílómetra styttingu, þ.e. sirka hálftíma. Það munar um þetta, Þessir 500 bílar (sem ég held að sé afar hóflegt mat) spara sér þá samtals 23.500 km og 250 klukkutíma af akstri á hverjum degi. Ég býst ekki við því að það væri farið út í þetta ef markmiðið væri eingöngu að stytta vegalengdir á milli norður og suðurlands en það er vissulega mjög ánægjuleg afleiðing af þessu, það ýtir eflaust undir nánari samskipti og samstarf þarna milli og ekkert nema gott um það að segja.

Bjarki (IP-tala skráð) 4.2.2007 kl. 23:07

2 identicon

Það er trúlega ekki það versta í heimi að leggja þennan veg þó að sjarminn muni mikið hverfa af þessari leið þegar þegar að þetta er orðið að hraðbraut. Það sem mér þykir þó allra verst eru þessir blessaðir vegatollar. Þetta er eitt það leiðinlegasta sem ég veit að borga í vegatolla. Ég er smeykur um að ef þetta verður raunin muni þetta enda eins og í Noregi, endalausir vegtollar. Við borgum háan skatt af bensíni og olíu og ÞAÐ á nota í vegagerðir. Mig langar í restina benda á með einu littlu reikningsdæmi hvað mun u.þ.b kosta að fara þessa leið.

Tollur fram og til baka= 4000 kr. 

Eldsneyti = 5000 kr. 

Ferðin í allt = 9000 kr.

Sum sé ég er ekki á móti veginum en algjörlega á móti vegtolli. 

Gunnar (IP-tala skráð) 5.2.2007 kl. 10:21

3 identicon

Tökum dæmi ef ég hef nægan tíma sleppi að aka suður kjöl og sleppi Hvalfjarargöngunum hvað spara ég þegar ég? Ég er á sparneytna bílnum mínum sem eyðir 5 á hundraðið þá kemst ég suðurí gegnum Hvalfjörðinn,  450km á  22,5lítrum og borga engann vegatoll og ég er næstum 5 tíma suður.

 22,5ltr*113kr ltr = 2452kr

slit á bíl 3000 kr

enginn vegtollur___________________samtals 5452

 Ef göngin eru tekin  stytting um 40 km

sparnaður við það í eyðslu minni km og sliti c.a. 500kr en 1000kr í veggjald svo 20ltr  =2260kr slit á bíl 2750 +v- tollur 1000 = 6010kr

Svo er það nýji kjalvegur

stytting upp á 50km frá hvalfjarðargongunum 100km frá lengstu leiðinni

350km *lítarar á100km/h =17,5l *113kr/ltr= 1978kr +slit á bíl c.a 2300 kr +veggjald 2000kr = 6278

svo samkvæmt þessu þá ertu með tæpa 500 krónur í hreinar tekjur fyrir að dóla hvalfjörðinn ef þú sleppir göngunum. En ef þú sleppir kjalvegi ert þú með 800kr fyrir þinn snúð.

Svo eru náttúrulega stór margföldunargildi i þessu þega bílarnir fara að eyða meira.

VMH

VMH (IP-tala skráð) 5.2.2007 kl. 14:09

4 identicon

Það sem ég var að spá hvernig fer með Vesturlandið verður það bara einhver svefnstaður og þeir staðir sem hafa með ferðamennsku að gera. Svo er annað að þetta er Þjóðlenda  og akvegur þar um en ekki einhver göng þar sem er möguleiki á að sleppa að fara í gegnum þau og fara annan veg.

Hörður (IP-tala skráð) 5.2.2007 kl. 22:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sóley Björk Stefánsdóttir

Höfundur

Sóley Björk Stefánsdóttir
Sóley Björk Stefánsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband