ný skorpa

Já ég held ég verði að sætta mig við það að vera skorpubloggari. Spurning hvort ég sé komin í nýja skorpu núna eða hvort þetta verði bara tilfallandi stök færsla.

Ég ætla amk að loka aðeins Hróarskeldufrásögninni. Það reyndist enginn tími til að blogga þegar Keldan var komin almennilega í gang því netkaffið lokaði kl 12 og þá var mar náttla bara á tónleikum einhversstaðar og svo þegar mar var búinn að moka sér á lappir og koma sér í stemmninguna daginn eftir þá var bara að drífa sig á tónleika en ekki hanga á netinu :)

Ég man nú svo sem ekki lengur hvað við sáum á laugardag og sunnudag en það var alla veganna Arctic Monkeys og eitthvað fleira. Mikið stuð.

Okkur gömlu hjónunum fannst við alveg rokka þrátt fyrir að hafa aðeins drukkið að meðaltali 1.5 bjórglas á kvöldi og oft verið farin í kúrið rétt eftir miðnættið enda var ekki leikurinn gerður til þess að þykjast vera einhverjir rosa partýboltar heldur bara til að njóta þess að vera á tónleikunum og í stemmningunni og ég myndi algjörlega mæla með því að þið hin gömlu brýnin sem, eigið það eftir, látið slag standa og skellið ykkur einn góðan veðurdag - þá meina ég góðan eða amk skítsæmilegan veðurdag en ekki í náttúruhamfararigningartíð ;)

Ég veit ekki hvort ég fer á Hróarskeldu á næsta ári enda fékk ég ekki bakteríuna svo brjálæðislega en ég á mjög líklega eftir að fara einhverntíman aftur. Ég myndi reyndar ekki taka upphitunina eins og ég gerði núna, heldur láta mér nægja að taka fimmtudag til sunnudag.

sem sagt, í stuttu máli: Það er gaman á Hróarskeldu, alveg sama hvort maður er í djammstemmningunni eða í rólegstuðstemmningunni. Þeir tónleikar sem standa uppúr hjá mér eru Arcade Fire og Arctic Monkeys.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Sóley Björk Stefánsdóttir

Höfundur

Sóley Björk Stefánsdóttir
Sóley Björk Stefánsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband